Dröslumst nú niður að Seðlabanka í hádeginu!

Mér léttir að heyra af mótmælunum. Við megum ekki láta hvaða vitleysu sem er yfir okkur ganga.

Með lögum skal land byggja!


mbl.is Mótmælt við Stjórnarráðið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Verð með í huganum.

Ásdís Sigurðardóttir, 6.7.2010 kl. 10:56

2 Smámynd: Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir

Ég er að fara og veit af fólki á leiðinni að sunnan sem ætlar að vera við komin ekki seinna en 12... Allir eru fegnir að þetta er farið í gang þó sorglegt sé

Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir, 6.7.2010 kl. 11:20

3 identicon

Ég fór í mótmælin við Stjórnarráðið en þar voru ca. 20 mótmælendur og svo einstaka fólk sem stoppaði við á leið framhjá. Svo fór ég í mótmælin við Seðlabankann og þar var ekki sú hersýning fólks sem vænta mátti að kæmi þar. Ég giska á að í mótmælunum við Seðlabankann hafi í það mesta verið ca. 300 - 400 manns.

Ég bara skil ekki samlanda mína; hvað þarf eiginlega til svo fólk druslist í þessi mótmæli? Hvar er fólkið með stökkbreyttu lánin; hvar eru þau 16 þúsund manns sem eru atvinnulaus? Þetta er þeirra barátta. Nú hvílir á okkur að verja lífsafkomu okkar um ókomna tíð. Af hverju mætir þetta fólk ekki í mótmælin?

Það er í boði almennings að allt verður þeim að vopni sem misbeita valdi sínu gegn okkur. Þetta er sorglegt samfélag, hugleysis og doða.

Daníel (IP-tala skráð) 6.7.2010 kl. 16:02

4 Smámynd: Guðrún Soffía Gísladóttir

Ég fór á mótmælin við Seðlabankann og giskaði einmitt á að það væru í mesta lagi 400 manns. Við erum sennilega vön því að allt sé gert fyrir okkur. Við þurfum eitthvað að breyta hugsunarhættinum hér á þessu landi. Það er mikil þörf á því að við látum í okkur heyra. Við þurfum að berjast fyrir réttlætinu!

Guðrún Soffía Gísladóttir, 7.7.2010 kl. 00:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband