Ég ætla, ætla, ætla ...

Jæja nú er mamman búin að senda strákana sína tvo úr landi. Framundan er heill mánuður þar sem aðeins móðir og hálffullorðin dóttir deila heimili. Ætli það sé ekki best að hætta þessum tilfinningarússibanaferðum móðurhjartans og snúa sér að því að njóta þess að hafa allt í einu meira svigrúm, frelsi og tíma.

Ég ætla, ætla, ætla að gera svo margt. Þetta er eins og þegar maður er nemi og hugsar til sumarsins. Maður ætlar gjörsamlega að gera allt -  já meira en nokkrum meðalgreindum meðalmanni gæti nokkru sinni tekist á einu meðalári ;) Auðvitað gerir maður svo ekki nema hluta af öllu sem maður ætlaði sér - en það er allt í lagi. Það er gott að eiga sér drauma þó að þeir verði ekki allir að veruleika. Sumir þeirra rætast allavega og það er alveg nóg!!!

Eitt af því sem ég ætla, er að fara á bókasafnið og ná mér í skólabók í Sögu sálfræðinnar sem er kúrs sem ég tek í haust. Ég ÆTLA að undirbúa veturinn því ég ÆTLA að ná góðum einkunnum. Einhverjir hrista eflaust hausinn yfir því að fólk sé að lesa skólabækur á sumrin og hafa enga trú á að þessi ætlun sé annað en orðin tóm. En það verður að hafa það í huga að fagið sem ég er að læra er svo endalaust spennandi og áhugavert. Eitt sem ég hef lært í sálfræðinni er að besta forspá um hegðun manna er fyrri hegðun.
Sumarið áður en ég hóf nám í sálfræðinni las ég spjaldanna á milli námsbókina í Almennu sálfræðinni sem er (eða var allavega) aðal fallfagið á fyrsta árinu. Það efldi mig enn frekar í þeirri ætlun minni þegar mér var sagt að sumarið myndi ekki endast mér til að lesa þessa bók.

Annað sem er á planinu er að eiga góðan mæðgnatíma. Við mæðgurnar ætlum í búðir að skoða föt og versla aðeins. Það hefur ekki verið gert mjög lengi og oft var þörf en nú er nauðsyn! Margt annað er á planinu en nú ÆTLA ég að hætta að blogga í bili.

Hafið það sem allra best elsku bestu þið - gaman væri að fá einhver viðbrögð svona til að vita að einhver lesi bloggið manns.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hæ Guðrún mín.

Ég ÆTLA að fylgjast með blogginu þín, alltaf gaman að lesa pælingar hjá öðrum. Ég hrissti sko ekki hausinn yfir lestur skólabóka á sumrin. Ef maður hefur gaman af því sem maður er að lesa/læra á er sko ekkert að því að gera það á sumrin.

Knús!

Bella (IP-tala skráð) 22.6.2010 kl. 12:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband